Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Afmæli...

Blogger's

Viskubrunnur

Lífið kemur aldrei aftur, það er einmitt þetta sem gerir lífið svo unaslegt.
(Emily Dickinson 1830-1886)

Myndasíðurnar mörgu

Nýjast á B2.is

Innskráningar kubbur

LífiðHulda Björk Snæbjarnardóttir

Jæja... guð minn góður hvað ég er löt að skrifa hérna.
Það er greinilegt að ég á stórt viðhald... FÉSBÓK!
Fer svona milljón sinnum meira á hana en bloggar.aldrei.is

Snorri er kominn í sönggírinn...
syngur inná skrifstofu... sæti strákur.

Ég veit ekki... hugsun mín undanfarna mánuði um alla þá vinnu sem ég hef lagt á mig hefur komið mér að hvaða gagni? Jú hamingjusömu sambandslífi með ástinni í lífi mínu. Ég veit allt um sálfræði, innvensl og útþensl. Tróbríandmenn og hvað maður á ekki að vera vondur við kennarann sinn. Christ maður! 
Annað hvort ólst ég upp hjá svo geðveikt gömlu fólki með svo geðveik gömul gildi að ég er orðin eitthvað djók í tímum. Virðing við kennarnn er mér gjörsamlega heilög... það er greinilega ekki í allra nemenda huga miðað við í hvaða tíma ég sæki... Christ maður!

Ég veit ekki... en vá hvað sumarið er komið. Ég elska það að vakna við Kríugarg á morgnanna í sveitinni... mér var nú nóg boðið samt eitt sinn þegar mávarnir komu líka og byrjuðu öll herlegheitin. Það munaði minnstu að Tengdapabbi dræpi allt liðið hefði hann fengi leyfi.
Ég er búin að borða svo mikið popp að ég ropa heilum poppkornum næst örugglega...

Prófin eru byrjuð.. eða næstum því.. þriðjudaginn...
Spænska... ég hef áhyggjur niður í tær.... og bara að ég nái engu... sem er ekki rökrétt, en samt rökrétt fyrir manneskju einsog mig...

Ég fer suður 16. mai n.k ef Guð leyfir mér það... þá meina ég, að hann leyfir mér að lifa af stressuðustu tímabilin á árinu.. prófatíðina.
Við Hulda ætlum í roadtrip til Reykjó, með peninga og handfarangur meðferðis. Markmiðin eru himinhá en tilgangurinn annar...
Helga María er þrítug... og við stöllur ætlum að skilja börn, kusur og kalla eftir annarstaðar... bara við tvær... ég hef ekki komið til reykjavíkur síðan ég veit ekki hvenær... við ætlum að missa okkur... Ég hlakka alveg djöfull til...
Annars ætla ég að halda áfram að læra og ropa poppi...

Out
Hulda lús

Frábær afmælisdagur að bakiHulda Björk Snæbjarnardóttir

Jæja gamla kellingin vaknaði við að Snorri sinn smellti kossi á sig áður en hann skokkaði útí sveit á föstudagsmorgunin. Dagurinn byrjaður sem kellingin var búin að bíða eftir svo lengi. Hún var komin á þrítugsaldurinn.

Soddan hressilegur dagur. Fékk enga afmælisgjöf um morgunin eða neitt þannig einsog tíðkast hefur undanfarna afmælisdaga. Fór í vitlausa stofa í byrjun en náði að komast ósein í Spænsku þar sem Auður Spænskukennari gaf mér frábæra afmælisgjöf að við fórum í spænksukunnáttuleiki sem voru fáránlega erfiðir en samt geggjað skemmtilegir í stað þess að sitja yfir leiðinlegum verkefnum einsog við erum öll sammála um. Sagan var góð líka, fékk að fara fyrr úr tíma og fórum við Snorri svo uppí sveit í hádegismat.
Ég var búin að biðja um "afmælishádegismat" hjá Tengdó, og það var ekkert meira né minna en fiskur í ofni. Guuuuuð hann var svooooooo góður. Svo fórum við í íslensku til Benna og ég hef varla skemmt mér eins vel og þarna. Spurði hann óvart hvort hann vildi gefa mér sex en þá átti ég við spurningu sex og engin fattaði þetta nema þrjár manneskjur. hahah.. og við sprungum úr hlátri yfir þessu. Svo hleypti hann okkur 40 mínútum fyrr því að ég átti afmæli :) Geðveikt!

Svo bara gekk þetta sinn vanagang. Fór á pósthúsið og náði í pakkan minn frá systkinum mínum og það var ROSA flott úr sem ég fékk. Ég hreinlega gapti. Og það líka að geta keypt handa mér úr sem mér fannst fallegt er meira en létt get ég sagt ykkur.
Jæja. Ég fór strax í búðir eftir skólann og keypti fuuult af berjum á kökuna og tók mömmu uppí á leiðinni og heimsótti afa og svoleiðis keyptum það sem við þurftum fyrir kvöldið en ég bauð Huldu og Héðni og tengdó og höfðum forrétt og lamb og geeeggjaða köku og allir voru að deyja !!! Ég gaf Héðni risa jarðaber í forrétt og hann sagði bara að hann borðaði ekki rauð epli. Hann fattaði ekki að þetta voru jarðaber!! Shit þau voru geðveikt stór!
Ég fékk rosalega flottan blómvönd frá tengdamömmu og tengdapabba og ótrúlega sætt hálfétið blóm frá Huldu Magga og Héðni, já hálfétið því Kötturinn komst í það og byrjaði að kjamsa á því áður en þau komu. Svo fékk ég ógeðslega flotta tösku og armbönd frá Huldu og Magga og Héðni og 5000 krónur frá tengdó.
Frá Mömmu og pabba fékk ég rosalega flott armband frá einhverri Sif Jónsdóttur eða eitthva alveg rosalega fallegt og GEÐVEIKAN hring frá Snorra í stíl frá sama hönnuði. Svo var ég að hugsa að nota þennan fimmara í hálsmenn í stíl við skartið sem mamma, pabbi og Snorri gáfu mér.
Í gær fór ég mína jómfrúarferð í ríkið og keypti mér áfengi fyrir kvöldið í kvöld. Sperrillinn ég rosa uppi með mig að fara ein í ríkið og var komin að kassanum þegar kassadaman sagði bara næstum strax á eftir "góðan dagin" settningunni "SKILRÍKI!!!" og ég bara heheh ekkert mál, lét hana fá ökuskírteinið mitt og blés varla úr nös! Herðu konan bara; "Það er ekki 20. í dag!" og ég bara HA! hvað meinaru, það er víst 20. mars í dag! "nei" sagði konan. það er ekki 20. mars í dag. Og ég var næstum farin að grenja sko!! Var ég orðin svona helvítii vitlaus að halda að afmælið mitt væri í dag og svo bara ER EKKERT AFMÆLI!! og ég með kökk í hálsinum bara... en .. en ... ÉG Á AFMÆLI Í DAAAAG!! ... og konan varð geðveikt miður sín bara... ehh.. bíddu já það er 20. í dag.. heh.. alveg rétt.! Sko hefði hún haldið fast í einhvern annann dag þá hefði ég farið að grenja á endanum og skammast mín fyrir að halda ÞVÍ fram að ÉG ÆTTI AFMÆLI!! drullu var ég vitlaus, að efast það að ég ætti kannski ekki afmæli 20 mars... Shit... hún vildi kannski bara svo geeeeeðveikt mikið BÖSTA MIG!
En ég komst klakklaust útúr þessu öllu saman með afsökunarbeiðni og hamingjuóskir með daginn frá afgreiðsludömunni. Greyjið var alveg miður sín yfir þessu þar sem ég var eiginlega farin að grenja yfir því að það hlyti að vera 20. mars þennan dag, því ég ætlaði ALDREI að fara innum þessar dyr nema vera POTTÞÉTT orðin lögráða á áfengi. Guð þetta var svo fyndið.

Svo gekk ógeðslega vel í gær og allir urðu pakksaddir. Svo vaknaði ég í fyrsta skipti með Snorra mínum í morgun í laaaaaaangan tíma. En hann hefur alltaf farið mun fyrr á fætur en ég til þess að fara í fjós.
Við fórum í sund og ég spreytti mig í nýja neon-bikiní-inu mínu... og fór svo og keypti fyrir partý-ið í kvöld en vinir Snorra ætla að koma í smá bjórkvöld og hitting og Katrín Lilja kemur líka :). Svo erum við Mamma,pabbi,Lilja amma, tengdamamma og tengdapabbi og Snorri að fara í Freyvang á Vínlandið á eftir. Það verður alveg ofsalega gaman :D  En jæja ég ætla að fara að gera eitthvað. Lita á mér augabrúnirnar og svoleiðis. Svo ég verði nú gasalega falleg á eftir HAHA!!
Gamla kellingin Hulda

Landsmót KFUM og KHulda Björk Snæbjarnardóttir

Jæja, allt brjálað að gera, er búin að vera a fullu að þvo fötin mín svo ég geti nú farið almennilega á Landsmót KFUM og K núna á eftir með Sibbu.
Oh. hvað ég hlakka til að fara þó svo að sé nóg að gera hérna heima fyrir líka, þá meina ég, frumsýning í Freyvangi og svo er víst Steinar að koma líka, gat ekki valið sér verri tímasetningu karlmaðurinn.!

Allaveganna ætlaði ég að hafa þetta stutt í þetta skiptið.
Lenti uppá slysadeild fyrir viku síðan á laugardaginn. Var að taka inn lyf sem fór ekki alveg niður og stoppaði í vélindanu á mér svo ég fór að finna fyrir andþrengslum,köfnunartilfinningu og bruna i hálsi og niður. Alveg geðveikt sárt og á endanum gat ég varla talað við Snorra Pál. OG að sjálfsögðu druuuullu stressuð!!

Læknirinn á endanum gaf mér róandi því ég fékk víst krampa í vélindað á endanum því ég gat ekki slakað á.
og ég virkilega slakaði á í fyrsta sinn á ævinni, finnst mér. Vá ég var alllveeeg slök og sofnaði svo á öxlinni á Snorra Páli á slysadeildinni.
Þannig endaði okkar Valentínusardagur.

Við RÚSTUÐUM geeeeðveikum fyrirlestri ég og Anton í gær. Svo mikið að fólk var farið að skrifa sjálfsmorðsbréf þetta var svo langur fyrirlestur! Tæpar 40 mínútur um Aþenu og ólympíuleikanna.
Kennarinn stoppaði mig á ganginum núna áðan og sagði mér að hún væri varla búin að ná sér eftir fyrirlesturinn í gær hann hafði verið alveg "stórglæsilegur" og að það væri réttast að ráða okkur í vinnu við værum svo fær í þessu. Ég brosti bara í gampinn, hún vissi náttla ekki að okkur Antoni langar báðum að vera kennarar. haha..
Nema þetta var alveg frábært að heyra þetta, enda gjörsamlega elskar hún okkur, búin að gefa okkur tíu í öllum verkefnum og við erum á góðri leið með að fá tíu fyrir þennan fyrirlestur :) Ég er svo ánægð með sjálfan mig :P

Nema hvað.
Þvottavélin er búin svo ég ætla að fara að gera eitthvað að viti. Hringja í Sibbu og fleira.

Hulda lús.

UmferðarfeitubollurHulda Björk Snæbjarnardóttir

Kræst hvað ég er farin að hata fólk sem fattar ekki að maður er að blikka það þegar það er með slökkt á bílljósunum, keyrir bara fatlað framhjá þér og heldur að ÞÚ sért vangefin. Horfir allaveganna á þig þannig.

Allaveganna þá var eg í Sölku Völku prófi í dag, og ég byrjaði að lesa bókina í morgun. kláraði hana og fór svo í prófi og rústaði því með eindæmum JEE

Er farin að taka leiðtogastarfið mitt VIRKILEGA alvarlega! Tókum t,d upp stuttmynd fyrir landsmótið í gær og ég fékk lánað geislaverð hjá Héðni (sem átti að vera með í myndinni) nema hvað þegar ég fæ geislasverðið síðan í hendurnar spyr hann mig hvað við erum að fara að gera við það, og ég útskýri það, "JÁ NEI" sagð'ann "þá sko lætur þú fólk ekki hafa svona.. heldur..." (hljóp inn til sín og kom með stærra geislasverð!!) "ÞETTA ER MEÐ HLJÓÐI!!!", svo ég fór með mjög stórt og hljóðbært geislasverð með mér á fund, og þessi 8 ára strákur rústaði 14 ára strákum í leikfangaeign. þeir gjörsamlega misstu allt vit og vildu allir prófa að sveifla því og berja hvorn annan með því að við Jói vorum á fullu að rífa þetta af þeim og ég endaði með því að fela það fyrir þeim. Héðinn þessi elska.. svo gjafmildur.

og úr því kom ógeðslega flott myndband og að sjálfsögðu rústuðum öllum landshlutunum í stuttmyndakeppninni, en ég læt ykkur vita af því seinna meir.

Það er síðan 7 dagar þangað til að ég fer með hershöfðingjanna með mér á landsmót í 24 manna rútu, ég er líka búin að hóta þeim öllum illu (að sjálfsögðu í gríni) að þeir verða að vera einsog ljós því annars skiljum við þá eftir einhverstaðar útí rass*ati. Er búin að ákveða að taka mynd f þessum tilvonandi en samt núverandi föngulega hópi sem verðum við! Ég er svo stolt leiðtoga"mamma"

Fór í partý í Freyvangi með Freyvangshópnum á laugardaginn var OH VÁ HVAÐ ÞAÐ VAR MERGJAÐ STUÐ! vonandi koma FUUUULLT af myndum. Það eru til svo sætar myndir af okkur Snorra, sem vorum líklegast eina fólkið sem var edrú þarna HAR HARR HARR...

Ég er uppí sveit. Mér finnst svo gott að vera hérna, ég elska það. Áðan, fórum við Snorri í Bústólpa og ég fékk Bústólpagalla, Djöfull var ég flott maður. Alltaf fundist þetta hálf sexy vinnufatnaður ef ég´á að vera hreinskilin, haha þýður það ekki bara að ég sé orðin nógu sveitó! Ég er allveganna alltaf í ullarsokkum þegar ég er inni og sef í öðrum og er alltaf í ullarsokkum yfir buxnaskálmarnar einsog hver annar sveitalubbi, mér finnst það æðislegt. Sveitin er greinilega farin að höfða feitt til mín. :)
Ég og Snorri höfum áhuga á að verða húsverðir í Freyvangi, ætli sú hugsun verði framkvæmd? Ég veit ekki, ég þarf líklegast fyrst að drepa Pálma ef ég ætla ekki að bíða í 20 ár eða eitthvað, Pálmi og Imma eru líklegast ekkert á leiðinni neitt annað, enda Freyvangshúsið flott fyrir tvo. Þá meina ég efri hæðin.

En jæja ég ætla að fara að fá mér eitthvað að borða og fara síðan að horfa á Bold and Beautiful og Neighbours.

Hulda lús

Glöggt er gests augað.Hulda Björk Snæbjarnardóttir

Ég elska systkinabörnin mín!... Nánar

Eyðilegging og VanmættiHulda Björk Snæbjarnardóttir

Jájá...

Loksins sest hérna niður í stólin og hef ekki neinar áhyggjur af neinu í bili. Skólavikan virkilega byrjuð og ég hlakka til að ég verð bara til miðvikudags í skólanum, löng en erfið helgi framundan samt sem áður. Kistulagning á Fimmtudaginn og Jarðaför á Föstudaginn. Eitthvað sem maður á ekkert að hlakka til en ég er svo bjartsýn alltaf, löng helgi hrýni ég og sé svo eftir því á fimmtudaginn þegar ég vil frekar hlusta á á Guðrúnu Mannfræðikennara sýna okkur hvernig forfaðir okkar fann sér stað til að kúka á eða eitthvað.
En annars þá var ég að vinna um helgina, sem var alltí lagi svosem, fyrsta skipti síðan amma dó, er hálf hrædd við fólk eftir að það brann hjá okkur fyrir einu og hálfu ári. Fólk linnti ekki samúðarkveðjunum niðurí Hagkaup og var knúsuð í gríð og erg beggja megin við borðið, ekki slæmt en frekar erfitt svona fyrir mig sem er svo tilfinningaþrungin að ég mun deyja úr hjartaáfalli af þeim afleiðingum.

En að allt öðru.
Um leið og ég ætla að gera EKKERT af mér og um leið ætla að vera góða manneskja sem ætlar sér ekki að gera neitt af sér, þá einmitt gerist það!
Ég eyðilegg eitthvað og brýt. Svona, einsog Dóra tætibuska sem var lesin oft of mörgum sinnum þegar ég var krakki, nema ég ætlaði mér AÐ SJÁLFSÖGÐU ekki að vera það jafn frek og leiðinleg og hún Dóra.
Svo er maður svo vitlaus að þora ekki að biðjast afsökunar, virkilega barnalegt en er frekar galli... veikleiki einhverskonar.

Svohh.. mig langaði aðeins að tjá mig. Hef alltaf ætlað að blogga eitthvað en svo hætti ég við. Svona hálfgerð ritstífla.
The five people you meet in heaven er besta enska bókmennt sem ég hef lesið um ævina. ÓVÁ hvað hún var góð, ég meira að segja gekk svo langt að fara geðveikt nördaleg inná bókasafn  (Þar sem m.a vinna FRÁBÆRIR bókaverðir í heimi) og leigði myndina. Snorri fékk að horfa með mér en gafst upp og sofnaði þegar ég sat einsog einhverfur krakki uppí sófa með kók í glasi og talaði með myndinni, var alveg klár á bókinni og myndin MJÖG góð eftir bókinni að dæma og ég að sjálfsögðu talaði með alla helvítis myndina, svo inná milli sagði ég við hann: "Og Snorri, svo á eftir að koma...AKKÚRAT ÞETTA!!!"  Ég held að Snorri mun ekki fíla mig einhverfa til lengri tíma svo ég vona að ég geri þetta ekki aftur.. hans vegna.

Ég þarf að hætta þessu blaðri og koma mér í gang til þess að gera eitthvað.

Hulda Björk

Helga Guðrún Sigurðardóttir f. 4. janúar 1927 d. 9. janúar 2009Hulda Björk Snæbjarnardóttir

Jæja. jæja...

Litlar fréttir af því nema við "litlu hjónin" sitjum hérna í sitthvorri tölvunni og gerum sitthvoran hlutinn. Ótrúlega samskipta- og tæknivæn eitthvað.

Nema hvað Amma Helga kvaddi í gær eftir stutt en alvarleg veikindi. Soldið skritin tilhugsun að amma sé farin. Hef ekki þurft að finna fyrir svona missi áður nema þegar amma Sigrún dó, en ég er samt tengdari ömmu Helgu... var tengdari.

Svo einsog ég segi er ég búin að vera mjög fjarræn og eirðarlaus, Eitthvað rosalega þrifagjörn núorðið og hef ekkert borðað vel einsog gerist og gengur við svona aðstæður. Þetta sorgarferli er mun erfiðara þegar maður þarf að kljást við það sjálfur en þegar maður er að hjálpa öðrum við það.

Nema hvað Skólinn er byrjaður og allt gengur vel að sjálfsögðu. Er í Mannfræði og Menningarlist og það er ekkert lítið gaman í Mannfræði. Skil Berglindi frænku vel með þetta hvað Mannfræðin er í raun og veru skemmtilegt fag.

En jamm og jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af mér einsog ég er vön að gera.

Hulda Björk

30. desember. 2ja ára afmælið okkar SnorraHulda Björk Snæbjarnardóttir

Jájájá...

Sit hérna ein í myrkrinu. Snorri er á næturvakt í Hrafnagilsskóla útaf flugeldasölunni. Pabbi gerði óspart grín með það að það þyrftu greinilega nokkrir björgunarsveitamenn að springa með í loft upp ef það kveiknaði í hjá þeim. Ég hlæ ekkert lengur með. hehe...

Nema hvað ég er búin að ákveða það, að ég ætla ekki að búa til annál núna. Þetta hefur ekkert verið rosalega skemmtilegt ár svo ef ykkur er sama þá ætla ég ekki að rifja upp allt þetta ógeðslega leiðinlega ár aftur.

Nema hvað ég er búin að ákveða nýársheit.
1. ég ætla að komast í Dalbjörgu, Björgunarsveitina inní firði.
2. byrja að spara.
3. fara loksins til reykjavíkur.
4. fara austur með Snorra, nánar tiltekið til Neskaupstaðar.
5. Senda Alex loksins eitthvað. eftir að hafa loksins fengið heimilsfangið í hendurnar.

Ekki er komið annað. enda ætla ég ekkert að hafa það meira helst.
Nema jólin voru æðisleg. róleg og yndæl þegar mútta var slök í jólastressinu.
Ég fékk frá
mömmu og pabba
Jólasokka sem ég er í núna
Saltkristlslampa
Sængurver Snorri fékk með mér lampann og sængurverin. loksins eigum við eitt á rúmið okkar eins. nema það sem við fengum að kaupa okkur fyrir pening frá Lilju skáömmu.

Frá tengdamömmu og tengdapabba
Hringekjukerta"stjaka"
Bókina: "sá einhverfi og við hin" EINA BÓKIN MÍN :D
Æðislegt veski (ég átti ekki peningaveski og var búin að gleyma því hvað það er VIRKILEGA þægilegt að týna ekki ökuskírteininu sínu og greiðslukortinu.

Systur Snorra:
Fondue pott og æðislega jóla snoopy sokka frá Helgu Maríu og co
Geggjaða snyrtitösku og snyrtidót frá Huldu, Magga og Héðni.

Sigrúnu,Þórði og Jónsa:
Fransk baðdót. sem ég bað um. freyðibaðið er geðveikt, auk þess sem ég fékk svampa til þess að þrífa baðið eftir mig. Jónsi sauður hélt að hann væri fyndinn. Var það á jóladag.

Elísu:
Yndislegt óskabaðsalt með kertum og alles. takk Elísa :*

Lilju skáömmu:
Peninga til að kaupa eitthvað fallegt og við Snorri keyptum okkur rúmföt og kodda fyrir peningin.

Gullu skáömmu og Snorra skáafa:
Ótrúlega falleg útsaumuð mynd af tveimur englum og ljóð eftir Höllu frænku Snorra með.

Snorra:
Hálsmen með krossi

Mig minnir að ég hafi ekki fengið fleira.
 Takk fyrir allar jólakveðjurnar og jólakortin.

Svo eigum við Snorri 2ja ára sambandsafmæli á morgun. Ætli það verður nokkuð gert eitthvað. held ekki´, sérstaklega líka afþví að hann þarf að keyra skít eftir að hann vaknar á morgun, og hvenær mun hann vakna eftir að hafa verið á næturvakt í 12 tíma til semsagt klukkan 10 í fyrramálið.

Ég ætla að halda áfram að gera ekki neitt.
Vona að ég fái útborgað að á morgun. Er samt ekki viss.
Jæja einsog ég segi þá kveð ég ykkur í bili

Kveðja
Hulda Björk


Gleðileg JólHulda Björk Snæbjarnardóttir

Hehe.. ég sem ætlaði að gera flott jólablogg :)

Maður getur víst ekki vitað hvernig aðfangadagurinn verður ekki satt?
 Svo, ég er að fara að vinna núna á eftir, svo ég hef ekki tíma til að talavið ykkuur :)

Heyrumst kát :D

Kveðja Hulda Björk

Þegar Trölli slátraði jólalögunumHulda Björk Snæbjarnardóttir

Mér varð nú alveg hroðalega um núna á sunnudagsmorgunin þegar að ég ætlaði að gægjast lítilega í Moggan. Var þá ekki heil síða með yfirskriftinni : "Þegar Trölli slátraði jólunum!!!" Undir því var umsögn frá fúlum hlustanda sem hafði ákveðið sig að skrifa einhverja grein um VERSTU jólalögin sem spiluð væru í útvarpinum um jólin. Fyrst var Jólahjól með Stebba Hilmars og hótaði þessi dýrlegi jólaunnandi að troða aumingja hjólinu uppí görnina á Stebba greyjinu. númer tvö var Jólin eru að koma með Jónsa og co, var víst og sætt og skemmtilegt þetta mynband sem strákarni unnu að, auk þess sem "jólaunnandinn" líkti þessu við auglýsingu á Kringlunni. Svo þar á eftir kom Snjókorn Falla með Ladda og það víst var ömurlegt lag og fáránlegt allt þetta og hitt auk miklu fleiri jólalaga sem ég nenni ekki að telja upp en´ég held að þau hafa verið 10 talsins sem hann valdi úr íslensku safni, þessi "jólaunnandi". Útlensku jólalögin voru 10 líka, og Last Christmas með Wham var þar í fyrsta sæti ömurlegt já og leiðinlegt, svo man ég ekki meir, Bill Crosby var þarna líka með sitt lag og svo að sjálfsögðu eitthvað skítkast sem aumingja billa fylgdi. Það lá við að ég fór að grenja af sárindum útí þennan auingja sem skrifaði þessa helvítis grein. Það lá við að ég ætlaði að hringja í morgunblaðið og spyrja hvort þetta ´tti að vera eitthvað fyndið, Ekki útaf jónsa greyjinu sem tórði þarna í öðru sæti heldur meira vegna þess að þessi ljóti "jólaunnandi" þurfti alveg að gera þetta svo skemmtilegt að drulla þessu út´ru sér fyrir alþjóð og segja HVAÐ HONUM FINNST um jólalög í útvarpinu. Vill hann ekki bara senda jólakveðju um þetta líka í ríkisútvarpinu á morgun mér er bara spurn. Það er eins gott fyrir þessa manneskju að hafa ekki hripað eitthvað niðru á bla með Villa vill eitthvað svona skítkast. Heimabærinn hans myndi líklegast standa í ljósum lögum og mótmæli um hver hafði skrifað þessi ófögur orð um mestu stjörnu Íslands hafi verið og lýst eftir honum í öllum fjölmiðlum og á endanum eftirlýstur sem glæpamaðurinn sem eyðiagði jólin fyrir börnunum á Íslandi árið 2008 hjá alþjóðadeild FBI... fíflið... Hvers konar fáránlingur er þessi manneskja að úthella sinni eigin skoðum um hvað onum finnst um þetta helvítis jólajhjól og snjókorn og fleira í þeim dúr, hvað vill hann þá? ha? eitthvað annað SKEMMTILEGRA hvað er það þá ha? *ull* ég vona að hann skammist sín þarna heimafyrir og virkilega sjái eftir þessu Maður virkilega skrifar ekki svona ljótt þremur dögurm fyrir jól.

Nema... svo ég hætti að sýna reiði mína hérna, þá gengur bara vel að öllum undirbúning. Er búin að vinna síðustu tvo daganna og er svo í fríi á morgun og aðfangadag sem er æðislegt. Svo, ég vona að ég geti tekið til með mömmu á morgun því ég hafði ekki tíma til þess í dag. Þarf samt að hjálpa tengdamömmu með eitt ákveðið á morgun og svo þarf að pakka öllum gjöfunum ,skreyta jólatréð sem tengdaforeldrarnir gáfu okkur,  og fleira og fleira, ég er svo ánægð með það að vera að vinna með Boggu, seinasta dainn fyrir jólafrí. ooo hvað það er gaman :D
Mér gekk mjög vel í prófunum og náði öllu nema stærðfræði, sem er bara mjög fínt :) Spænskan og enskan alveg brilliant og að sjálfsögðu sálfræði og uppeldisfræði. Er núna formlega orðin stúdent í sálfræði. Get ekki tekið fleiri sálfræðiáfanga í Verkmenntaskólanum á Akureyri hohoho...


Jæja ég ælta að fara að hætta þessu, þarf að fara að koma mér í vinnuna til hennar Boggu minnar. :D Ég er komin í svo þílíkt jólaskap og búin að kaupa ALLAR jólagjafir og bara Þetta er svoooo gaman :D
Ég vonandi get skirfað smá kveðju á aðfangadeginum til ykkar sem munuð lesa hana :D

-Sísí Jólaskvís :)
Síða 1 af 13

Teljari

Klukkan

Leit